• Ancol (21)
  • Bio-Groom (23)
  • Petmate (1)
  • Pura | Kattasandur (2)
  • 8in1 (0)
  • Foldhill (0)
  • All Systems (11)

Fréttir


  •  Starfsfólk Dýrheima óska viðskiptavinum sínum, landsmönnum öllum og d&ya...
    meira
  • Dr. Alain Fontbonne hélt í gærkvöldi fyrirlestur fyrir dýralækna á Í...
    meira
  • Húsfyllir var í gær þegar dýralæknirinn Alain Fontbonne hélt fyrirlestur &...
    meira

Viltu heimasíðu fyrir hundinn þinn?

08.12.2011

Hundaræktarfélag Ísland byður félagsmönnum sínum að fá heimasíðu fyrir hundinn sinn. Hægt er að nálgast þessa þjónustu á vef félagsins, www.hrfi.is

Frétt sótt á heimasíðu Hundaræktarfélags Íslands
 
Þú getur búið til frábæra heimasíðu um þig eða hundinn þinn á nokkrum mínútum. Notaðu verkfæri og sniðmát sem leiða þig skref fyrir skref í uppsetningarferlinu og bættu svo við eigin síðum, myndum og myndskeiðum. Það er einfalt! Hver sem er getur sett upp skemmtilega heimasíðu fyrir hundinn sinn á stuttum tíma og þetta er allt ókeypis í 30 daga.
 
Í samstarfi við www.simplesite.com, býður Hundaræktarfélag Íslands þér nýja leið til þess að setja upp flotta heimasíðu á fljótlegan og skemmtilegan hátt. Það besta er að þú þarft enga tækni- eða forritunarþekkingu. Allir sem eiga tölvu með netaðgangi geta sett upp eigin síðu á fáeinum mínútum. Það kemur á óvart hversu auðvelt ferlið er. Fylgdu aðeins leiðbeiningunum á skjánum skref fyrir skref og á undir 5 mínútum ertu kominn með síðu um þig eða hundinn þinn sem þú getur deilt með vinum og vandamönnum
 
Að byrja
 
Það er auðvelt að gera góðar síður fyrir heimasíðuna þína með því að nota þínar eigin myndir og sögur. Þú getur valið milli hundruða mismunandi sniðmáta til þess að búa til myndaalbúm, videosíður, gestabækur, myndabækur, gæludýrasíður, ættbókasíður o.s.frv. Þú getur svo bætt við skemmtilegum aukahlutum eins og talblöðrum, höttum og landslagi á myndirnar þínar sem vinir og fjölskylda munu hafa gaman að. Einnig getur þú hannað eigin sniðmát með því að nota þínar eigin myndir til þess að gera heimasíðuna persónulegr
 
Innblástur og hugmyndir
 
 
 
Góð heimasíða þarf að innihalda góðar undirsíður og það er ekki alltaf auðvelt að vita hvað á að setja inn. Þú getur fengið fullt af hugmyndum með því að skoða sniðmátalistann fyrir
 
 
 
Myndaalbúm
 
Video síður
 
Ættbókasíður
 
Dagbækur
 
Gestabækur
 
Fjölskyldutré
 
Og svo mikið meira……..
 
Einnig getur þú sett inn skemmtilegar viðbætur á síðuna þína eins og:
 
Púsluspil
 
Minnisleikir
 
Myndabækur
 
Myndasögur
 
Póstkort
 
Og margt fleira………..
 
Alveg ókeypis að prófa!
 
 
 
Ókeypis prufutími er í 30 daga án allra skuldbindinga. Ekki þarf að gefa upp nein kortanúmer til þess að prófa kerfið og eftir 30 daga er þér boðið að halda áfram eða hætta, viljir þú fá áskrift af kerfinu er verði stillt í hóf en viljir þú ekki halda áfram lokast síðan þín einfaldlega
 
Uppsetning á síðu
 
 
 
Þegar þú smellir á prófa færðu upp glugga þar sem þú velur litaþema og sniðmát á þína heimasíðu. Mjög margir valkostir eru í boði og þegar þú ert búinn að nota örvarnar til þess að velja þitt litaþema og sniðmát þarf einfaldlega að smella á “next”.
 
Á næstu síðu ertu beðinn um að velja hvað þú vilt setja inn á síðuna þína, má þar nefna dagbók, púsluspil, myndaalbúm, sambandssíðu, videosíðu og gestabók. Þú einfaldlega hakar við það sem þú vilt setja inn nú þegar en hægt að bæta inn fleiri valmöguleikum eins og t.d. ættbókarsíðum síðar.
 
Þriðji gluggin biður þig svo um að setja inn fyrirsögn á síðuna þína. Þarna er einnig beðið um að velja mynd á forsíðu og getur þú valið mynd af skjánum eða sett inn eigin mynd.
 
Fjórði gluggin biður þig svo um að nefna síðuna þína og nafnið sem þú velur verður hluti af slóðinni á síðuna. Áskrifendur geta síðan hafi þeir áhuga á tengt eigin lén við síðuna fyrir lágt árgjald.
 
Í fimmta glugga þarftu síðan að velja þér lykilorð sem þú notar þegar þú skráir þig inn til þess að breyta og bæta síðuna þína.
 
Í glugga sex ertu beðinn um að gefa upp netfangið þitt svo hægt sé að staðfesta skráningu.
 
Þegar þessum einföldu skrefum er lokið ferðu inn á þitt svæði og síðan þín er komin í loftið en þarna getur þú breytt því sem þú vilt og sett inn eigið efni.
 

 

Til baka