• Ancol (21)
  • Bio-Groom (23)
  • Petmate (1)
  • Pura | Kattasandur (2)
  • 8in1 (0)
  • Foldhill (0)
  • All Systems (11)

Fréttir

  •  Starfsfólk Dýrheima óska viðskiptavinum sínum, landsmönnum öllum og d&ya...
    meira
  • Dr. Alain Fontbonne hélt í gærkvöldi fyrirlestur fyrir dýralækna á Í...
    meira
  • Húsfyllir var í gær þegar dýralæknirinn Alain Fontbonne hélt fyrirlestur &...
    meira

Jólakötturinn Max

14.12.2011

Jólakötturinn 2011 var valinn um helgina í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á kattakynningu Kynjakatta en það voru gestir garðsins sem kusu. Kynntir voru 13 kettir af nokkrum tegundum en kynningin fór fram í Hafrafelli þar sem einnig er hægt að heimsækja Jólakött þann sem vissara er að loka inni enda ekki vitað hvað hann mun taka upp á sleppi hann út.
 
Kötturinn sem hreppti nafnbótina Jólakötturinn 2011 var persneski kötturinn Max en hann er hvítur og grár á litinn með mikinn og fallegan feld sem er vel við haldið af eigandanum Önnu Maríu Moestrup. Max minnir lítið á jólaköttinn sem flestir kannast við og hefur lifað í manna minnum í kvæðum Jóhannesar úr Kötlum.  Max er nefnilega mjög vandlátur á mat og drykk og drekkur til að mynda vatn einungis úr hvítvínsglasi að sögn Önnu Maríu.  Í öðru sæti varð Notalegi Nonni sem er norskur skógarköttur og í því þriðja varð einnig norskur skógarköttur að nafni Amanda.  Þrír efstu kettirnir hlutu í verðlaun kattamat frá Murr og Villiketti frá Freyju og auk þess fékk Max myndatöku hjá ljósmyndara.  Allir þátttakendur fengu kassa af Hátíðarmolum frá Freyju og gjafakort frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
 
Frétt af vef Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, www.mu.is
 
Til baka