Alþjóðleg hundasýning HRFÍ | 25. - 26. febrúar 2012
Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram helgina 25. - 26. febrúar 2012 í Reiðhöll Fáks í Víðidal í Reykjavík. Skráningafresti lýkur sunnudaginn 29. janúar 2012.
Dómarar að þessu sinni eru: Marja Talvitie (Finnland), C.E. Cartledge (Bretland),
Rafael Malo Alcrudo (Spánn), Tino Pehar (Króatía), Lisbeth Mach (Sviss) og
Zorica Salijevik (Svíþjóð).
Kynningu á dómurum er hægt að nálgast hér.
Vegna aukinna öryggiskrafna frá kreditkortafyrirtækjum getum við því miður ekki tekið við greiðslukortaupplýsingum á vef félagsins eins og gert hefur verið undanfarin ár. Hundaræktarfélagið er að láta búa til skráningarvef sem stenst kröfur kreditkortafyrirtækjanna en hann verður því miður ekki tilbúinn fyrir næstu sýningu.
Vegna athugasemda vegna öryggi kreditkorta hefur félagið ákveðið að taka á móti skráningum (fyrir hunda og unga sýnendur) í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu). Félagsmönnum býðst einnig að senda skráningu á sýningu í gegnum tölvupóst með nafni hunds í ættbók og ættbókanúmeri (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu svo skráning sé tekin gild) Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka. Félagsmenn geta eins og venjulega skráð á sýninguna á opnunartíma skrifstofu.
Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.
Breytingin mun hafa í för með sér að tafir geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir.
Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna, þ.e. 13. janúar 2012.
Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.
Skráning í afkvæma- og ræktunarhópa fer fram á sýningunni sjálfri. Þátttaka skal tilkynnt til viðkomandi hringstjóra.
Upplýsingar um hvaða gögn þarf til að skrá hunda í ættbók má nálgast hér.
Á þessari sýningu geta hundar fengið íslenskt og alþjóðlegt meistarastig.
Að venju er öllum deildum félagsins boðið að vera með kynningarbása þar sem kynning fer fram á starfsemi deildanna og þeim hundategundum sem þeim tilheyra.
Sýningar félagsins eru kjörinn vettvangur fyrir fólk sem er að leita sér að hundi/hundategund að koma og sjá og hitta eigendur og ræktendur tegunda.
Frekari upplýsingar má finna á www.hrfi.is
Frétt sótt á heimasíðu Hundaræktarfélags Íslands
Mynd: rakel/HRFÍ