Rćktandi ársins
06.02.2012
Ræktandi ársins!
Nýtt á hundasýningum HRFÍ
Stjórn og sýningastjórn Hundaræktarfélags Íslands hafa samþykkt að heiðra “Ræktanda ársins”, tekur gildi árið 2012.Stigahæsti ræktandi ársins.
Stigakerfi til útreiknings á stigahæsta ræktanda ársins.
Sá ræktandi sem hefur flest stig eftir hundasýningar ársins (janúar til desember) fær viðurkenninguna „Ræktandi ársins“. Til að eiga kost á stigum, skal ræktandi vera félagsmaður í HRFÍ, búsettur á Íslandi og eiga FCI viðurkennt ræktunarnafn. Stig eru einungis gefin á sýningum Hundaræktarfélags Íslands sem eru opnar öllum tegundum og gefa stig til meistara.
Á hverri sýningu eru eftirfarandi stig gefin:
1 stig fyrir hvert meistaraefni úr ræktun viðkomandi
2 stig fyrir ræktunarhóp úr viðkomandi ræktun með heiðursverðlaun
Ræktunarhópur úr ræktun viðkomandi sem nær sæti í BIS úrslitum dags:
1. sæti – 5 stig
2. sæti – 4 stig
3. sæti – 3 stig
4. sæti – 2 stig.
Stigahæsti ræktandi ársins samkvæmt þessu kerfi verður annað hvort heiðraður á sérstakri jólauppskeruhátíð félagsins eftir síðustu sýningu ársins eða á fyrstu sýningu ársins einnig er lagt til að birt verði viðtal við stigahæsta ræktanda ársins í Sámi.
Frétt fengin af vef HFRÍ.
Til baka