Gleðilegt ár
30.12.2011
Starfsfólk Dýrheima s/f óska viðskiptavinum sínum, landsmönnum öllum og gæludýrum gleðilegs árs og farsældar á komandi ári. Dýrheimar s/f ætla að hafa lokað eftir hádegi föstudaginn 30. desember og opna aftur mánudaginn 2. janúar 2012 klukkan 10:00
Pössum dýrin okkar um áramótin
28.12.2011
Nú um áramótin er ýmislegt sem hafa ber í huga varðandi dýrin okkar. Dýrheimasr s/f gáfu út í samvinnu við Dýralæknastofuna Lögmannshlíð á Akureyri leiðbeiningar fyrir gæludýraeigendur hvernig best er að meðhönda dýrin þegar íslendingar kveðja árið með flugeldum og sprengjukökum.
Jólakveðja frá Dýrheimum
23.12.2011
Starfsfólk Dýrheima s/f vilja óska þér, þínum og öllum gæludýrum, gleðilegra jóla.
Jólakötturinn Max
14.12.2011
Jólakötturinn 2011 var valinn um helgina í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á kattakynningu Kynjakatta en það voru gestir garðsins sem kusu. Kynntir voru 13 kettir af nokkrum tegundum en kynningin fór fram í Hafrafelli þar sem einnig er hægt að heimsækja Jólakött þann sem vissara er að loka inni enda ekki vitað hvað hann mun taka upp á sleppi hann út.
Viltu heimasíðu fyrir hundinn þinn?
08.12.2011
Hundaræktarfélag Ísland byður félagsmönnum sínum að fá heimasíðu fyrir hundinn sinn. Hægt er að nálgast þessa þjónustu á vef félagsins, www.hrfi.is
Facebookleikur Hundasnyrtistofunnar Hundavinir og Dýrheima
07.12.2011
Hundasnyrtistofan Hundavinir og Dýrheimar blása til leiks á Facebook. Það eina sem þú þarft að gera er að taka þátt í könnun á Facebooksíðu Dýrheima. Könnunnin er undir nafninu "Ferðu með hundinn þinn í hundasnyrtingu fyrir jólin?"
Jólaleikur á vef Landsmóts hestamanna
05.12.2011
Jólaleikur Landsmóts hestamanna hófst fyrir skömmu samhliða miðasölu á næstkomandi landsmót.
Jólakötturinn 2011 í Húsdýragarðinum
05.12.2011
Félagsmönnum í kattaræktarfélagi Íslands geta tekið þátt í skemmtilegri samkeppni næstkomandi helgi, en þarf verður jólakötturinn 2011. Hér að neðan má sjá tilkynningu frá félaginu og ar er að finna allar upplýsingar um samkeppnina og hvetja Dýrheimar alla til þess að taka þátt.
Dýrheimar eru með umboð fyrir PURA kattasand
05.12.2011
Dýrheimar með umboð fyrir PURA kattasand
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ 19-20 nóvember
11.11.2011
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ 19-20 nóvember.








